Um bókina
Barnaljóðabók, ljóð eftir Þórarin Eldjárn, myndir eftir Sigrúnu Eldjárn. Geisladiskur fylgir bókinni þar sem Bára Grímsdóttir kveður kvæðin við forn íslensk rímnalög.
Úr Gælum, fælum og þvælum
Jónas litli
gagaraljóð
Í buxum, vesti, brók og skóm
barnið Jónas úti stóð.
Hlýddi á fugla, horfði á blóm,
Huldu sinni orti ljóð.
Honum fannst það heilög stund,
hugmynd spratt og til hans þaut:
Fífilbrekka gróin grund,
grösug hlíð með berjalaut ...
Fór hann upp á háan hól,
horfði á rjúpu flýja val.
Það var logn og það var sól,
þetta var í Öxnadal.