Sumarið eftir tíunda bekk snýst líf Jóels, Álfhildar, Tomma og Hildigunnar um sumarvinnu, fótbolta, óvæntar uppákomur og einlæg samskipti. Allt gengur sinn vanagang þangað til Ania birtist. Hún er ólík öllum sem Jóel hefur hitt og eftir að hún sest fyrirvaralaust við borðið hans á Bláu könnunni rekur hver furðulegi atburðurinn annan. Og tölvan sem Jóel situr uppi með eftir að Ania lætur sig hverfa geymir vísbendingar sem varða framtíð Íslands.
Núll núll 9 er sjálfstætt framhald bókanna Svalasta 7an og Undir 4 augu.
Úr Núll núll 9 [spennusögu]:
Núna líður mér eins og ég þurfi að fara með heilabúið í alhliða hreinsun. Ég vil þurrka út allar tilfinningar til stelpna á mínum aldri, jafnvel stráka líka, og byrja upp á nýtt. Mig langar að vera fullkomlega afslappaður og segja flest og gera allt sem hugurinn og tilfinningarnar segja mér að gera. Samt ekki fara yfir strikið eins og Tommi. Það er eins og einhver lítill, leiðinlegur ritstjóri sitji í hausnum á mér og fari yfir allt sem mér dettur í hug og leggi það fyrir nefndir og ráð í stað þess að hleypa því beint út. Ég vil losna við þrjóskuna, feimnina og óöryggið, verða opinn, léttur og ljóma af sjálfstrausti. Stundum er ég þannig, sérstaklega þegar mömmu og Rebekku líður vel og mér gengur allt í haginn. Mér hættir til að taka svo margt inn á mig. Ég veit að ég get ekki bjargað heiminum, bara sjálfum mér. Þannig verður heimurinn betri. Líklega hugsa ég og mikið, þarf kannski að fara á námskeið í hugsanaleysi eða hvað það nú heitir. Af hverju er ég til dæmis að hugsa um allt þetta í miðri gleði með vinum mínum. Kannski er sálfræðingur lausnin. Ég er bilaður.