Myndir eftir Elsu Nielsen
Um bókina
Sóla er orðin stóra systir. En það er ekki eins skemmtilegt og hún hélt. Litli bróðir er hávær og alltof lítill til að leika við. Sóla ákveður að grípa til sinna ráða. Hún leggur upp í örlagaríka ferð, hjartað tekur kipp og ekkert verður eins og áður.
Systkinabókin er óvænt viðbót við sögurnar um Sólu. Þessar litríku bækur efla skilning barna á eigin tilfinningum og annarra og hjálpa þeim að færa þær í orð.
Úr bókinni
Þegar litli fæddist fannst Sólu hann vera bæði rauður og krumpaður í framan.
Aðrir sögðu að hann væri svo mikið krútt og heimilið fylltist af gestum. Allir vildu sjá litla bróður og færa honum gjafir. Samt átti hann ekki afmæli og það var heldur engin afmælisveisla.
(s. 5)