Evana Kisa myndlýsir. Bókin er prentuð með letrinu Dyslexie sem auðveldar lesblindum að lesa.
Um Bókina
Þín eigin saga: Knúsípons fjallar um tölvuleik, krúttlegasta kvikindi sem þú hefur nokkurn tímann séð, stórhættulega óvini – og ÞIG.
ÞVÍ ÞÚ RÆÐUR HVAÐ GERIST!
Mundu bara ef sagan endar illa má alltaf reyna aftur – það eru mörg mismunandi sögulok!
úr bókinni
Þú hugsar málið.
Þessi leikur heitir "Hopp og skopp".
Er þá ekki best að gera það bara?
"Knúsípons!" hrópar þú um leið og þú hoppar.
Í stað þess að lenda á jörðinni miðar þú á einn aparassinn.
Þú hittir beint í mark.
"Arg!" argar hann, kremst niður í jörðina og springur í tætlur. Ekkert er eftir af honum.
"Vá!" hrópar þú og lítur á hina apana. Rassarnir eru orðnir eldrauðir.
"Komið ef þið þorið!" argar þú og stekkur af stað.
Flettu á blaðsíður 30.
(s. 15)