Um bókina
Þín eigin saga: Rauðhetta fjallar um hugrakka stelpu, ráðagóða ömmu, grimman úlf, dimman skóg - og ÞIG.
ÞVÍ ÞÚ RÆÐUR HVAÐ GERIST!
Mundu bara ef sagan endar illa má alltaf reyna aftur - það eru mörg mismunandi sögulok!
Evana Kisa myndlýsir.
Úr bókinni
„Farðu burt!“ hrópaði Rauðhetta.
Úlfurinn satarði á hana.
„Farðu burt“ hrópaði Rauðhetta aftur.
Úlfurinn glápti á hana.
„Farðu burt!“ hrópaði Rauðhetta í þriðja skipti.
Úlfurinn varð leiður á svipinn.
Svo byrjaði hann að gráta.
„Ó, nei!“ sagði Rauðhetta. „Fyrirgefðu.“
En það var um seinan.
Úlfurinn hljóp í burtu og hvarf inn í skóginn.
Rauðhetta horfði á eftir honum.
„Úps“ sagði hún lágt.
Svo hélt hún áfram heim til ömmu sinnar.
Þar fengu þær sér góðgæti úr körfunni.
Svo fór Rauðhetta aftur heim.
ENDIR
(bls. 39-40).