Um bókina
Jólin nálgast og Þorri og Þura eiga að gæta jólakristalsins hans afa. Allt í einu hættir kristallinn að lýsa og hinn eini sanni jólaandi því í mikilli hættu! Tekst vinunum að laga kristalinn og bjarga jólunum?
Agnes Wild skrifar söguna en hún er byggð á leiksýningunni Jólaævintýri Þorra og Þuru eftir Miðnætti sem frumsýnd var í Tjarnarbíói 2019. Tónlistin er eftir Sigrúnu Harðardóttur og Eva Björg Harðardóttir sá um búninga og útlit. Bergrún Íris myndhöfundur tók að sér að gæða prentútgáfuna lífi.