
Gestir
Lesa meiraÞegar ókunnug læða tekur að venja komur sínar heim til viðskiptafræðingsins Unnar veit hún nákvæmlega hvernig hún á að leysa vandann. Innan skamms stendur eigandinn, ung og illa tilhöfð kona að nafni Ásta, á tröppunum hjá henni með ferðabúr. Daginn eftir birtist Edit þó aftur og gýtur agnarsmáum kettlingi í rúmi Unnar.
Bældar minningar
Lesa meiraÁ fjórðu hæðinni í Chaucer-húsi finnast tvö ungmenni hlekkjuð við ofn. Drengurinn er dáinn en stúlkan á lífi. Hvert einasta smáatriði vettvangsins endurspeglar hræðilega lífsreynslu rannsóknarfulltrúans Kim Stone og Mikeys bróður hennar þegar þau bjuggu í sömu blokk þrjátíu árum fyrr.
Fimm ljóð
Lesa meiraFimm ljóð úr smiðju verðlaunahöfundarins, Ísfirðingsins og nýhil-skáldsins Eiríks Arnar Norðdahl. Hér tekst skáldið á við nærumhverfi sitt síðustu fjörutíu ár; borgir og náttúru, sjoppur og pylsur, föðurhlutverkið og tímann.
Skálds saga
Lesa meiraVerðlaunahöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir hefur á löngum ferli samið fjölda skáldsagna, ort ófá ljóð og skrifað vinsælar sannsögur, en hér er hún á nýjum slóðum og segir frá sjálfri sér, viðhorfum sínum, aðferðum og aðstöðu við skriftir.
Hlutaveikin
Lesa meiraJólin nálgast. Freysteinn Guðgeirsson verður æ spenntari með hverjum degi sem líður. Á endanum koma þau samt og hann getur loksins, LOKSINS opnað alla jólapakkana. En þá kemur dálítið í ljós sem reynist erfitt viðureignar þó allt fari vel að lokum.
Eldri konur
Lesa meiraUng kona gefur rapport af þráhyggju sinni fyrir eldri konum og rekur líf sitt frá barnæsku til fullorðinsára gegnum frásagnir af konum sem hafa heltekið hana. Eldri konur er röntgenmynd af ástandi. Við kynnumst konunni með ólíkum brotum af sögu hennar, uppvexti í flóknum heimilisaðstæðum, mismunandi vinnustöðum, vináttu, ástum, sigrum og ósigrum.
Tjörnin
Lesa meiraÞegar Fífa og Spói rekast á ókunna dæld í miðjum garðinum sínum breytist allt. Hélukeppir og gljáfætlur, óstýrilát selshamsstytta, dularfullt draugabarn og bíræfnir nágrannar eru bara brot af þeim undrum sem koma upp úr kafinu þegar vinirnir munda skóflurnar.
Saga af svartri geit
Lesa meiraDagsgömul, agnarsmá geit kemst óvænt í hendur fátæks, aldraðs bónda sem ásamt konu sinni fórnar öllu til að koma huðnukiðinu á legg. Það reynist erfitt í hörðum heimi þar sem fátækt, kúgun og uppskerubrestur eru veruleiki manna og dýra. Heillandi saga lítillar geitar.
Í skugga trjánna
Lesa meiraLötrandi með skálarnar gegnum miðbæinn og vestur í bæ leit ég út eins og vogin sem guðinn Anubis notaði til að mæla hjörtu nýdáinna forn-Egypta - á annarri vogarskálinni fjöður sem var táknmynd Ma'at, gyðju fegurðar og réttlætis sem bar ábyrgð á að viðhalda jafnvægi í alheiminum.