Beint í efni

Tjörnin

Tjörnin
Höfundur
Rán Flygenring
Útgefandi
Angústúra
Staður
Reykjavík
Ár
2024
Flokkur
Barnabækur

Um bókina

Þegar Fífa og Spói rekast á ókunna dæld í miðjum garðinum sínum breytist allt. Hélukeppir og gljáfætlur, óstýrilát selshamsstytta, dularfullt draugabarn og bíræfnir nágrannar eru bara brot af þeim undrum sem koma upp úr kafinu þegar vinirnir munda skóflurnar. 

Rán Flygenring er margverðlaunaður höfundur og teiknari. Hún hefur margsinnis hlotið Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar og árið 2023 fékk hún Norðurlandaráðsverðlaunin fyrir bókina Eldgos. Fyrir Tjörnina hlaut hún Íslensku bókmenntaverðlaunin og Fjöruverðlaunin.
 

Úr bókinni

tjörnin opna

Fleira eftir sama höfund

koma jól?

Koma jól?

   
Lesa meira
eldgos

Eldgos

  
Lesa meira
Drottningin sem kunni allt nema ... kápa

Drottningin sem kunni allt nema ...

Bambalína drottning kann allt! Nema kannski eitt. Hvað ætli það sé? Kannski kemur það í ljós daginn sem hún þeysir á hestvagninum sínum til að opna nýja leikskólann (ef hún nær þangað á réttum tíma).
Lesa meira