Iðunn Arna myndlýsir
Um bókina
Lús! fjallar um Sigríði og lýsnar sem hreiðra um sig á höfði hennar. Það vill enginn vera með höfuðið fullt af lúsum … eða hvað?
Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.
Úr bókinni
„Ég held að ég hafi aldrei séð þig svona vel greidda,” sagði Brynja, stóra systir Sigríðar, og hló. „Þú ættir að fá lús oftar.”