Leikrit eftir Völu Þórsdóttur sem byggt er á (eða innblásið af) fimm smásögum Svövu. Sögurnar eru Eldhús eftir máli, Gefið hvort öðru, Saga handa börnum, Krabbadýr, brúðkaup, andlát og Veisla undir grjótvegg. Verkið var frumsýnt á smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í desember 2005 í leikstjórn Ágústu Skúladóttur.
Verkið hlaut Menningarverðlaun DV í leiklist 2005.