Um bókina
Hér yrkir Bubbi um lífsreyndan föður sem fylgist með ungum dætrum á leið út í lífið, þann ólgusjó sem hann hefur sjálfur siglt, en ráð hans og orð fá ekki alltaf hljómgrunn.
Föðurráð fjallar um ugginn sem býr í brjóstinu en líka ástina og fögnuðinn yfir framrás lífsins, nýjum degi, nýrri veröld.
Úr bókinni
Hellamálverk
ég er í raun hellamálverk
líf mitt er lófafar á andardrætti tímans
utangátta fæddur á öld þegar
konan var í hlekkjum
dætur okkar eru að sigra heiminn
háskólinn er þeirra
hafa lagt undir sig gresjuna
þær sitja í hring sækja og deila sögum
ekki velja ykkur mann
sem líkist mér
(s. 25)