Um bókina
Tvíburarnir Inga og Baldur eru alveg að komast í páskafrí. Framundan sjá þau fyrir sér talsvert súkkulaðiát og almenna flatmögun en í ljós kemur að þau eiga að gista hjá ömmu sinni sem er nýflutt til landsins í hið dularfulla byggðarlag Héragerði. Inga tekur fréttunum fagnandi enda sýna útreikningar hennar fram á að amman hlýtur að skulda þeim páskaegg langt aftur í tímann. Baldur er ekki jafnspenntur og kvíðahnútur gerir sig heimakominn í maga hans. Það kemur þó fljótt í ljós að ferðalagið felur í sér alls konar ævintýri; riddara í næsta garði, strætóferð í prumpufýlu, nýja vini og meira að segja nýja fjölskyldumeðlimi.
Bókinni fylgja alls konar aukahlutir! Kíktu í vasann aftast til að svala forvitninni!
Héragerði er sjálfstætt framhald Grísafjarðar sem var tilnefnd til barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs, Íslensku bókmenntaverðlaunanna og var valin besta barnabók ársins af bóksölum landsins og Morgunblaðinu.
Úr bókinni
Baldur kafar í barnalauginni. Hann syndir eftir botninum og þegar hann kemur að flísalögðum tröppunum ímyndar hann sér að hann hafi fundið týndu eyjuna Atlantis fyrstur manna. Hann þykist lenda í átökum við kolkrabba sem rífur af honum sundgleraugun. Baldur hendir gleraugunum lengst út í laug og stingur sér á eftir þeim. Þegar hann finnur þau loks og setur á sig, breytist hann í ofurhetju og getur klifrað á veggjum og hann hangir á sundlaugarbakkanum og lætur sig svífa á milli skýjakljúfa.
(s. 27)