Um bókina
Kærastinn er rjóður er fimmta ljóðabók Kristínar Eiríksdóttur, en hún hefur einnig skrifað leikrit og skáldsögur.
Úr bókinni
en bréfritari
það var óheppni að þú valdir mig
en samt engin tilviljun
því ég hef heyrt sitthvað
um ást móður þinnar
og veit að þú hefur engan sálgreini
sem spyr þig hárréttra spurninga
á hárréttum augnablikum
enga móðurlega rödd sem reddar þér
og segir
að allir leiti ásta
á kunnuglegum slóðum.