Beint í efni

Ró í beinum : Ljóðaþykkni 1982-2022

Ró í beinum : Ljóðaþykkni 1982-2022
Höfundur
Ísak Harðarson
Útgefandi
JPV útgáfa
Staður
Reykjavík
Ár
2023
Flokkur
Ljóð

Um bókina

Ró í beinum er úrval ljóða Ísaks Harðarsonar (1956‒2023) sem hann tók sjálfur saman og gekk frá til útgáfu skömmu áður en hann lést.

Undirtitillinn er Ljóðaþykkni 1982‒2022 og elstu ljóðin eru úr fyrstu bók hans, Þriggja orða nafn. Ljóðabækur Ísaks urðu ellefu talsins á þessum fjörutíu árum, auk safnritsins Ský fyrir ský frá árinu 2000. Fyrir þá næstsíðustu, Rennur upp um nótt frá 2009, var hann tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Ísak var fjölhæfur höfundur og þýðandi, og sem ljóðskáld hafði hann verulega sérstöðu. Hann orti íhugul, trúarleg og heimspekileg ljóð sem stundum lýsa örvæntingu og einmanaleika en einnig von og gleði; í þeim má oft finna óvæntar myndir, gáska og kraft. Val hans á ljóðum í þessa bók er eftirtektarvert og óhætt er að kalla hana merkilegan minnisvarða um eðalskáld.

Andri Snær Magnason ritar eftirmála.

Fleira eftir sama höfund

Hjörturinn skiptir um dvalarstað

Lesa meira

Veggfóðraður óendanleiki

Lesa meira

Veraldarviska

Lesa meira

Bókaþjófurinn

Lesa meira

Við fótskör meistarans

Lesa meira

Leið pílagrímsins

Lesa meira

Ræflatestamentið

Lesa meira

Ljóð í Wortlaut Island

Lesa meira

Öreigarnir í Lódz

Lesa meira