Um bókina:
Hér segir Þórunn frá uppvexti sínum í Reykjavík rokksins og hippaáranna, þar sem erfiður skilnaður foreldranna varpaði skugga á gleðina, frjálsu stúdentalífi í Lundi og Mexíkó, kommúnum, ástmönnum og litríkum samferðamönnum. Opinská frásögnin er ofin trega og hamingju, léttleika og djúpum söknuði.
Stúlka með höfuð er sjálfstætt framhald af Stúlku með fingur og Stúlku með maga, þar sem Þórunn notaði heimildir og skáldlega túlkun til að segja sögu móður sinnar og formæðra.