Æviágrip
Gunnar Helgason er fæddur árið 1965 í Reykjavík. Hann er leikari að mennt, útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1991 og hefur síðan þá unnið sem leikari, leikstjóri og handritshöfundur fyrir kvikmyndir, svið og sjónvarp. Gunnar hafði umsjón með Stundinni okkar á Ríkissjónvarpinu árin 1994-6 ásamt Felix Bergssyni og í kjölfarið hafa þeir samið og sent frá sér heilmikið af tónlist fyrir börn og leiknu barnaefni í ýmsum miðlum. Þá hafði Gunnar umsjón með uppsetningum leikrita Latabæjar víðs vegar um heim árin 2008-10.
Gunnar gaf frá sér sína fyrstu barnabók, Goggi og Grjóni, árið 1992. Árið 1995 birtist framhald á ævintýrum þeirra félaga, Goggi og Grjóni: vel í sveit settir. Síðan hefur Gunnar sent frá sér einar átta barnabækur, þar á meðal sögurnar um fótboltastrákinn Jón Jónsson sem hefjast með Víti í Vestmannaeyjum (2011). Gunnar fékk vorvindaviðurkenningu IBBY á Íslandi árið 2013 fyrir framlag sitt til barnamenningar og hefur hlotið Bókaverðlaun barnanna sleitulaust frá árinu 2013, að árinu 2015 einu undanskildu. Þá hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og unglingabókmennta fyrir Mömmu klikk! árið 2015.
Gunnar býr í Hafnarfirði.
Forlag: Mál og menning.
Frá höfundi
Pistill frá Gunnari Helgasyni
Ég fæddist inn í mjög skemmtilega og hressa fjölskyldu. Mamma var hressasta mamman í blokkinni (Háaleitisbraut 18 – sögusvið Gogga og Grjóna) og þótt víðar væri leitað. Hún var alltaf að láta okkur krakkana gera eitthvað. Safnaðai saman fullt af krökkum og lét okkur fara í leiki eða syngja. Hún spilaði á gítarinn eða píanóið þó hún segðist ekkert kunna á hljóðfæri. Svona nett mamma klikk.
Ég á tvíburabróður, hann Ásmund og tvö eldri systkini, Nínu og Hallgrím. Ég deildi herbergi með Nínu (Ási með Hallgrími) alveg þangað til að hún varð svo unglingaveik að mamma og pabbi ákváðu að við þyrftum stærri íbúð þar sem Nína (og Hallgrímur) fengju sérherbergi. Reyndar svaf amma Malla inni hjá mér þegar hún bjó hjá okkur. Ég hef ekki hugmynd um hvar Nína var á meðan.
Pabbi vann hjá Vegagerðinni við að hanna brýr og seinna sem Vegamálastjóri. Það þýddi að við ferðuðumst mjööög mikið um landið á sumrin og stoppuðum við hverja einustu brú til að kíkja undir hana og athuga ástandið á henni. Við fórum því ekki hratt yfir en þetta þýddi að við Ási fórum að hafa mikinn áhuga á að kasta einhverju út í straumvatn. Það voru steinar á þessum árum en það þróaðist út í flugur. Ég er forfallinn veiðisjúklingur og hef gert tvær myndir um seiði og tvær sjónvarpsséríur með Ása bró. Sú þriðja verður sýnd á RÚV í vor.
Ástæðan fyrir því að ég skrifa bækur er einföld. Mér finnst ég soldið góður í því og maður á að reyna að að gera það sem maður er góður í.
Ástæðan er hinsvegar flókin líka. Ég ólst upp við það að hámarkið, loka-takmarkið, hápunkturinn og það allra flottasta í lífinu væri að vera listamaður. Málari eða skáld var mest töff. Ég ætlaði aldrei að verða það enda fannst manni listamenn vera galdramenn og álíka líklegt að maður gæti orðið svoleiðis eins og að maður gæti orðið Harry Potter.
Hinsvegar skrifaði ég mína fyrstu bók í 8. bekk. Það er að segja, ég átti að skrifa ritgerð eða sögu og endaði á því að fylla heila stílabók, spjaldanna á milli með sögu um innflytjendur til Ameríku og indjána og vonda karla og það allt. Guðni íslenskukennari var mjög ánægður með afraksturinn og las alla bókin fyrir bekkinn. Það tók heila viku. Mjög erfiða viku fyrir mig en að lestrinum loknum sagði Guðni að ég ætti að gera meira af þessu. Sem ég gerði ekki. Fyrr en í menntaskóla. Þar hitti ég annan kennara sem hvatti mig ákveðið áfram. Það var hann Brynjólfur. Hann gaf mér reyndar bara 6,0 fyrir smásögu sem var hluti af lokaeinkunn sem var alveg glatað því ég hafði skrifað sögur fyrir tvo vini mína sem fengu 8,5 og 9,0 fyrir „sínar“ sögur. Ég fékk að skrifa aðra sögu og fékk 8,5 fyrir hana. Ég hafði ætlað að vera svona rosalega djúpur og gáfaður í fyrstu sögunni minni að það skildi hana ekki nokkur maður „þó að stíllinn væri nokkuð góður“ eins og Brynjólfur sagði.
Ég var hálfbeygður eftir þetta en náði mér á strik mánuði síðar, því á stúdentsprófinu sjálfu fékk ég nokkur söguefni til að skrifa. Ég valdi „glæpur og refsing“ og skrifaði barnasögu. Prófdómararnir gáfu henni 9,5 og það fylgdi með að hún hefði átt að fá 10.0 en það tíðkaðist bara ekki að gefa smásögum 10,0.
Þannig að ég fékk það svona smám saman staðfest að ég gæti skrifað.
Strax eftir útskrift úr leiklistarskólanum skrifaði ég Gogga og Grjóna. Ég vann sem næturvörður þetta sumar í þjónustuhúsi fyrir aldraða – þar sem amma var – og eftir að hafa farið kaffirúntinn til nokkurra vina minna og fengið pönnukökur hjá ömmu settist ég niður og handskrifaði fyrstu bókina. Hún kom út tveimur árum síðar og fékk afbragðsdóma og seldist bara vel. Svo skrifaði ég aðra bók um þá félaga en varð svo mjög upptekinn af því að vera leikari. Skrifaði reyndar Grýlu en var að öðru leyti mest í því að leika og leikstýra. Það var svo árið 2008 að ég byrjaði að vinna hjá Latabæ (sá um leikritin þeirra, sem eru sýnd út um allan heim) og þá fann ég hvar ég átti heima. Það var í barnaefninu. Barnabókinni. Ég ákvað árið 2010, þegar ég hætti hjá Latabæ að héðan í frá skyldi ég skrifa eina bók á ári fyrir börn.
Það hefur tekist og gengið bara ágætlega.
Gunnar Helgason, nóvember 2016
Greinar
Almenn umfjöllun
Jón Yngvi Jóhannsson: „Þetta á að vera FÓTBOLTABÓK!“
Tímarit Máls og menningar 2015, 76. árg., 4. tbl. bls. 32-44.
Sigurður Sigurðsson: „Mamma klikk, Pabbi prófessor og Amma best“
Þroskahjálp 2017, 39. árg., 2. tbl. s. 8-11
Um einstök verk
Gula spjaldið í Gautaborg
Gísli Skúlason: „Fimm í fótbolta?“ (ritdómur)
Börn og menning 2015, 30. árg., 1. tbl. bls. 20-1.
María Bjarkadóttir: „Líf eftir fótbolta“
Bókmenntavefurinn, umfjöllun um bækur, sjá hér
Mamma klikk
María Bjarkadóttir: „Að vera til er hugarástand“
Bókmenntavefurinn, umfjöllun um bækur, sjá hér
Pabbi prófessor
María Bjarkadóttir: „Jólin eru að koma. Ómægod!“
Bókmenntavefurinn, umfjöllun um bækur, sjá hér
Rangstæður í Reykjavík
María Bjarkadóttir: „Fjör í fjórðu deild“
Bókmenntavefurinn, umfjöllun um bækur, sjá hér
Siggi sítróna
María Bjarkadóttir: „Systkini gegnum súrt og sætt“
Bókmenntavefurinn, umfjöllun um bækur sjá hér
Víti í Vestmannaeyjum og Aukaspyrna á Akureyri
Helga Birgisdóttir: „Spenna, gleði og sorg innan og utan vallar“ (ritdómur)
Spássían 2012, 2. árg., 4. tbl. bls. 18.
Verðlaun
2018 - Bókaverðlaun barnanna: Amma best
2017 – Sérstök viðurkenning fyrir stuðning við íslenska tungu, í tengslum við afhendingu verðlauna Jónasar Hallgrímssonar
2017 - Bókaverðlaun barnanna: Pabbi prófessor
2015 - Bókaverðlaun barnanna: Mamma klikk!
2015 - Íslensku bókmenntaverðlaunin, flokkur barna- og unglingabóka: Mamma klikk!
2015 - Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana, besta íslenska barnabókin: Mamma klikk!
2014 - Bókaverðlaun barnanna: Rangstæður í Reykjavík
2013 - Bókaverðlaun barnanna: Aukaspyrna á Akureyri
2013 - Vorvindaviðurkenning IBBY á Íslandi, fyrir framlag til barnamenningar
Tilnefningar
2022 - Barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins: Bannað að eyðileggja
2016 - Barnabókaverðlaunin Vestnorræna ráðsins: Mamma klikk!
Alexander Daníel Hermann Dawidsson : bannað að drepa
Lesa meiraADHD-ið hans Alexanders gæti samt bjargað málunum! Hann tekur nefnilega eftir ÖLLU og veit að það er BANNAÐ AÐ DREPA!. .Barnaræninginn
Lesa meiraDraumaþjófurinn
Lesa meiraBarist í Barcelona
Lesa meiraSiggi sítróna
Lesa meiraÍsland á HM
Lesa meiraStrákaklefinn: byggt á raunverulegum atburðum
Lesa meiraAmma best
Lesa meiraVíti í Vestmanneyjum
Lesa meira
Krókódílar stranglega bannaðir
Lesa meira