Um bókina
Hér er Völuspá í sinni fornu gerð og endursögn Þórarins Eldjárns. Textinn birtist upphaflega í safnritinu Svört verða sólskin (1992). Myndskreytt af Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur.
Í hinni frægu spá sinni segir völvan forna frá sköpun heimsins, blómaskeiði og ragnarökum, og loks nýrri upprisu. Þetta kvæði er lykill að heimsmynd norrænna manna að fornu.
Úr bókinni
Sól tér sortna,
sígur fold í mar,
hverfa af himni
heiðar stjörnur.
Geisar eimi
við aldurnara,
leikur hár hiti
við himin sjálfan.
Sólin sortnar,
sígur jörð í haf,
hverfa af himni
heiðar stjörnur.
Leikur eldur
um askinn mikla,
háir logar hita
himin sjálfan.