Um bókina
Í Þykjustuleikunum, nýjustu ljóðabók Antons Helga Jónssonar er okkur boðið í sirkus þar sem fer fram samfelld dagskrá og alls konar persónur, misjafnlega kunnuglegar, eru kynntar til leiks. Ólíkar raddir skiptast á, sumt er fyndið, sumt sorglegt og stundum lætur hryllingurinn á sér kræla. Þessi leikur með gervi og raddir endurspeglast að nokkru í útliti og uppsetningu þessarar nýstárlegu ljóðabókar. Þykjustuleikarnir eru tíunda ljóðabók Antons Helga.
Úr bókinni
Nykurinn
Steingrái hesturinn á sviðinu skal vera nykur
allir hófarnir vísa aftur
hófskeggin fram
og mann á fremsta bekk
hrífur þessi kynjaskepna
nýstigin upp úr tjörn liðinna tíma
þar sem besta tónlistin hljómar enn
og gegnheilt fólk sem hlustar fyllist sælu.
Maðurinn fer upp á svið og stekkur á bak
nennir engum málamiðlunum lengur
í glötuðu tómi
vill strax komast annað.
Undan öfugum hófum þyrlast tregi mannsins
þegar nykurinn hleypur af stað
hleypur aftur á bak og aftur í tímann
uns hann stekkur með fagnandi knapann
ofan í botnlausa tjörn hinna liðnu daga og ára.
Sviðið er autt.
Þaðan sem einu sinni var alltaf best að lifa
verður aldrei aftur snúið.