Beint í efni

Mamma sandkaka

Mamma sandkaka
Höfundur
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
Útgefandi
Salka
Staður
Reykjavík
Ár
2024
Flokkur
Barnabækur

Um bókina

Dalía er komin til fyrirheitna landsins, Tenerife, með pabba sínum. Hann virðist þó ekki skilja að frí eru alls ekki til að hvíla sig og Dalíu er farið að leiðast. En hver skyldi þá birtast og bjarga málunum nema…æi, ætli það sé ekki best að þú lesir bókina til að komast að því.

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er listakona sem fæst við myndlist og skriftir, söng og grín. Hún hefur hlotið verðlaun og tilnefningar fyrir barnabækur sínar, meðal annars til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Barnabókaverðlaunanna Norðurlandaráðs, Barnabókaverðlauna Vestnorræna ráðsins, Bóksalaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar.

Úr bókinni

mamma sandkaka opna

Fleira eftir sama höfund

héragerði

Héragerði

Héragerði er sjálfstætt framhald Grísafjarðar sem var tilnefnd til barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs, Íslensku bókmenntaverðlaunanna og var valin besta barnabók ársins af bóksölum landsins og Morgunblaðinu.. . Bókinni fylgja alls konar aukahlutir! Kíktu í vasann aftast til að svala forvitninni!. .  
Lesa meira

Hulli 1

Lesa meira

Hulli 2

Lesa meira

Áramótaskaup 2019

Lesa meira

Lóaboratoríum

Lesa meira
mamma kaka

Mamma kaka

Viggó er kominn í vetrarfrí. En það er mamma alls ekki. Hún hefur engan tíma til að leika við Viggó heldur vill bara vinna, sussa og skammast. Þá væru góð ráð dýr fyrir flesta krakka. En ekki fyrir Viggó!. .  
Lesa meira
dæs

Dæs

Árið 2020 var ótrúlegt ár. Lóa Hjálmtýsdóttir, sem aldrei stendur við áramótaheit, ákvað að teikna eina mynd á dag á árinu á tilraunastofu sinni. Aldrei hafði hana grunað hvað árið myndi bera í skauti sér – og að það væri hlaupár í þokkabót! Myndirnar 366 spegla sameiginlega reynslu samfélags í samkomubanni – og við megum leyfa okkur að hlæja smá. Bæði að því sem er fyndið og því sem er óþolandi og óbærilegt. Og ekki síst að okkur sjálfum.
Lesa meira

Grísafjörður

Grísafjörður er fyrsta barnabók Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur sem einnig myndlýsir söguna.
Lesa meira

Why are we still here?

   
Lesa meira