Æviágrip
Anna Dóra Antonsdóttir fæddist þann 3. október 1952 á Dalvík, þar sem hún ólst upp. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1972, útskrifaðist með kennarapróf frá Kennaraháskóla Íslands árið 1976 og hlaut sérkennarapróf frá Oslóarháskóla árið 1990. Anna Dóra lauk einnig MA prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2007, en lokaverkefni hennar fjallaði um húsfrú Þórunni Jónsdóttur á Grund (1509-1593).
Anna Dóra var bóndi um tveggja áratuga skeið á Skagafirði og hefur unnið ýmis störf utan ritstarfa. Frá árinu 1976 hefur hún þó fyrst og fremst lagt stund á kennslu og kennsluráðgjöf, og hefur nú starfað sem framhaldsskólakennari og ráðgjafi á fræðsluskrifstofu frá árinu 1990.
Árið 1998 sendi Anna frá sér sögulegu skáldsöguna Voðaskot: saga af ólukkutilfelli. Þar segir frá óupplýstu sakamáli sem átti sér stað á Dalvík á nítjándu öld, en þar kemur forfaðir Önnu, Hans Baldvinsson, við sögu. Síðan hefur hún gefið út fleiri bækur fyrir fullorðna og börn, bæði skáld- og smásögur.
Brennan á flugumýri
Lesa meiraÞar sem skömmin skellur: Skárastaðamál í dómabókum
Lesa meiraUppskriftir stríðsáranna: matur úr íslenskum eldhúsum eftir stríð
Lesa meiraRefir í hættu
Lesa meiraBardaginn á Örlygsstöðum
Lesa meiraHafgolufólk
Lesa meiraBrúðkaupið í Hvalsey
Lesa meiraKonan sem fór ekki á fætur
Lesa meiraHuldur
Lesa meira
Vinnubók: þjálfun, heilsa, vellíðan: kennslubók í líkamsrækt
Lesa meiraÞjálffræði
Lesa meiraÞrír Tommar og api sá fjórði
Lesa meiraÞjófarnir og svínslærið
Lesa meiraSámur, Hámur og Glámur
Lesa meiraLína
Lesa meiraLitli grái maðurinn
Lesa meiraDagur í lífi Busa
Lesa meira