Beint í efni

Fjársjóður í mýrinni

Fjársjóður í mýrinni
Höfundur
Sigrún Eldjárn
Útgefandi
Mál og menning
Staður
Reykjavík
Ár
2024
Flokkur
Barnabækur

Um bókina

Fjársjóður í mýrinni er þriðja bókin í röðinni um krakkana í Mýrarsveit þau Stellu, Ella og Bellu sem búa með pabba sínum í gráa húsinu, og Móses sem býr með mæðrum sínum þremur í bláa húsinu. Börnin ganga í Mýrarskóla sem er stýrt af hinni orðheppnu Ásu Egg og í mýrinni býr ófreskja sem Móses þykir afar vænt um. Einn daginn banka uppá óprúttnir gestir á stórum bíl með ískyggileg plön um framtíð mýrarinnar í farteskinu.

Sigrún Eldjárn er einn ástsælasti barnabókahöfundur þjóðarinnar. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir bækur sínar sem eru ríkulega myndskreyttar. Fyrsta bókin í sagnaflokknum um börnin í Mýrarsveit, Ófreskjan í mýrinni, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og önnur bókin, Fjaðrafok í mýrinni, var tilnefnd til barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar. Fjársjóður í mýrinni tekur á málefnum sem varða umhverfisvernd og börn á flótta.

Úr bókinni

 

 

fjársjóður í mýrinni mynddæmi

Fleira eftir sama höfund

Teitur í heimi gulu dýranna

Lesa meira

Jólakrakkar

Lesa meira

Strokubörnin á Skuggaskeri

Lesa meira

Eyja glerfisksins

Lesa meira

Týndu augun

Lesa meira

Eins og í sögu

Lesa meira

Kynlegur kvistur á grænni grein

Lesa meira

Langafi drullumallar

Lesa meira

Beinagrindin

Lesa meira