Beint í efni

Skyldan kallar. Pólitískur gamanlekur

Skyldan kallar. Pólitískur gamanlekur
Höfundur
Hermann Stefánsson
Útgefandi
Ríkisútvarpið
Staður
Ár
2009
Flokkur
Útvarpsleikrit


Leikritið, sem er fyrsta leikrit Hermanns, verður frumflutt í Útvarpsleikhúsi RÚV sunnudaginn 18. janúar 2009. Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson  og í aðalhlutverkum eru þau Guðjón Davíð Karlsson og Erla Ruth Harðardóttir. Með önnur hlutverk fara Halla Margrét Jóhannesdóttir, Tinna Hrafnsdóttir og Margrét Kaaber.

Um verkið:

Ungur starfsmaður í Þjóðmenningarhúsinu leitar til geðlæknis vegna fíknar sinnar í ofbeldisfullan tölvuleik. Heimsóknir hans til læknisins fara á annan veg en hann ætlaði og áhöld eru um hvar ofbeldið leynist, hvað er leikur og hvað alvara, hvað ímyndun og hvað veruleiki. Fyrr en varir streymir blóðið um gólf og veggi Þjóðmenningarhússins og líkin hrannast upp í íslensku samfélagi.

Fleira eftir sama höfund

Súkkulaði og kók

Lesa meira

Algleymi

Lesa meira

Skipið siglir

Lesa meira

Níu þjófalyklar

Lesa meira

Sjónhverfingar: Fjarvistarsannanir fyrir íslenskan veruleika

Lesa meira

Stefnuljós

Lesa meira

Borg í þoku

Lesa meira

Áður óútgefið efni

Lesa meira

Högg á vatni

Lesa meira