Úr Kuðungasafninu:
Í þorpinu Hrauni syngja þorpsbúar í svefni. Þess eru dæmi að fólk syngi eða rauli í svefni, en að heilt þorp láti í sér heyra á hverri nóttu á þennan óvenjulega hátt er einstakt. Flestir láta sér í léttu rúmi liggja að sofna út frá söng fjölskyldu sinnar eða nágranna. Þó geta viss lög verið býsna þreytandi séu þau sungin nótt eftir nótt. Það er einstök upplifun að ganga um þetta söngglaða þorp og hlusta á allar þessar ólíku raddir óma í náttmyrkrinu. Á nýársnótt þegar stjörnurnar sáldra gliti sínu yfir sofandi húsin er söngurinn svo samstilltur að þorpið hljómar eins og risastór, himneskur kór.
Í þorpinu Tungu sofa allir á verðinum. Hvergi á landinu er meira um þjófnað. Þeir eru reyndar sjaldnast stórvægilegir, en þó eru þorspbúar sífellt að hnupla hver frá öðrum. Lítirðu í kaffi til nágranna þíns rekstu fljótlega á einhvern smáhlut sem þú hefur sárt saknað. Samt hefurðu ekki orð á þessu heldur laumar honum í vasann ásamt farsíma sem liggur á glámbekk eins og allt annað í þorpinu.
(14-5)